Það er ofar mínum skilningi af hverju þessi síða er enn í gangi..
Við börðumst hatrammlega við fólkið á blog.central við að halda
nafninu AA en það var víst afar eftirsótt á tímabili.. En samt ..
*andvarp* jæja, þá.. Allavega, allt vitlaust að gera hérna í
Kaupinu hjá mér.. marr er orðinn mikilvægasti hlekkurinn í
kassakerfinu þó ég segi sjálf frá.. (eftir að ónefndir aðilar sögðu
starfi sínu lausu) Ef ég er ekki hlaupandi upp og niður til að
leysa raðir, þá er ég að kenna nýliðum, eða skamma nýliða, því ekki
gerir það neinn annar.. Takandi til ALLAN liðlangan daginn, því
ekki er hann stuttur og ekki tekur neinn annar til eftir að Tara
fór.. Eða þá að hlaupa í önnur störf, svo sem sjoppu, skiptiborð og
skilakassa, hlaupandi með lykla útum allt.. úff ég er uppgefin..
andlega og líkamlega.. Get ekki beðið eftir að komast héðan, og
Steinn ég hata þig fyrir að hafa yfirgefið mig!!

. . .
hehe

Mmmkay, njellirnir farnir að selja sig.. ég meina
bílana sína.. ehh.. Kannzki að marr auglýsi sinn hérna líka.. ath
hvort að fjelk hafi áhuga? hmmm!? Allavega Litla Kvikindið mitt er
algert yndi og ótrúlega vel með farinn

Hann er ToyBoy nei,
Toyota Corolla ´93 árgerð, með 1600 vél uhh keyrður eikkað 150þús
eða 160þús man ekki alveg hehe

Hann er þó nokkuð kraftmikill
þrátt fyrir aldur.. Hann breytir um lit úúúúú stundum er hann
grængrár, stundum grár stundum silvurgrænn.. hann breytir um lit
eftir því hvernig skapi þú ert í híhíh

áhugasamir geta haft
samband hérna á síðunni eða bara á msn paskalilja@hotmail.com

Pís át Lúlú